Photography
Nature+ Travel + + Photography
When looking at houses, rooms and furniture, I just want to take pictures. For me it's art. Like the theme in the house and how everything is ordered in different ways, the furniture for example. And how each and every piece of furniture gets personal qualities when you get to know about them and the stories that follow. That makes me so excited to move into my future house, buy furniture that I want, order them my way and have my own theme. But this lovely house that I took photos of is my grandparent's and I can't describe how much I care about it. Well, obviously it's my grandparents. It's kind of minimalistic but it still blends in with antique things and that makes the style so unique and their's. I hope you enjoy! // Mig langar alltaf að taka fullt af myndum þegar ég sé hús, herbergi og falleg húsgögn. Fyrir mig er það einfaldlega list. Það er líka bara eitthvað við það að horfa á það og vera í kringum falleg húsgögn. Tilfinningin er góð og manni líður bara vel. Svo er eins og húsgögnin fái persónulega eiginleika um leið og þú færð að heyra hvaðan þeir koma. Hver saga fylgir hverju og einu húsgagni. Þá þykir manni svo miklu vænna um þá. Þetta huggulega hús sem ég tók myndir af er fallega húsið hjá ömmu og afa. Mér þykir svo rosalega vænt um það. Það hefur einmitt sinn stíl og hefur afar falleg húsgögn. Það er pínu minimalíst en þar á móti blendur antík við og gerir stílinn að þeirra. Ég vona að þið njótið jafn vel að horfa á þessar myndir eins og ég geri! // Afi minn byggði þetta hús fyrir mörgum árum. Það er eitt af þeim ástæðum af hverju mér finnst það sérstakt og þykir einstaklega vænt um það. Þegar hann kynntist ömmu minni og átti von á barni hafði hann hugann við að byggja hús. Þar sem þau voru að stofna nýju fjölskyldu og ekki mikið til af húsum. Einnig alveg tilvalið því afi hefði unnið lengi með múrara. Hann vann til dæmis við það að múra kirkjuna og samkomuhúsið (betur þekkt sem félagsheimilið) í litla heimabænum mínum. Hann byrjaði árið 1956 og fékk smið til að setja niður listann. Síðan kláraði hann það að utan 1957 að sumri til rétt fyrir komu fyrsta barnsins síns og hefur hann með ömmu búið þar síðan þá. Ótrúlegt en satt þá voru þau 8 í heildina í húsinu. // Mér finnst græni liturinn á ganginum vera svo skemmtilegur. Einnig hinir litirnir sem passa vel við. Þá á ég við brúnu-og grunnlitina. Síðan kemur svartur sterkur inn. x
Monika Janina Kristjánsdóttir
0 Comments
|